Prentað
miðvikudaginn 8. september kl. 06:19 af www.sgs.is
Fræðslumál
Starfsgreinasamband Íslands hefur beitt sér sérstaklega á sviði starfsmenntamála frá því að sambandið var stofnað, enda er aukin menntun félagsmanna mikilvægur þáttur í að tryggja launafólki betri stöðu á vinnumarkaði og hærri laun.
Hvers vegna starfsmenntun?
- Starfsmenntun eykur möguleika einstaklinga með því að efla kunnáttu og þekkingu.
- Starfsmenntun gefur tækifæri til að endurnýja kunnáttu eða bæta við hana.
- Starfsmenntun stuðlar að hagnýtum árangri.
- Starfsmenntun styrkir sérkunnáttu og færni sem áunnist hefur í starfi.
Til umhugsunar . . .
- Þarftu að takast á við breytingar í starfi?
- Langar þig að efla kunnáttu þína og þekkingu?
- Langar þig að ná betri færni í starfi?
- Langar þig til að nota betur hæfni þína eða auka hana til að takast á við ný og fjölbreytt verkefni?
Tengingar við fræðslusjóði verkafólks og nokkra fræðsluaðila
- LandsMennt er fræðslusjóður Samtaka atvinnulífsins og verkafólks á landsbyggðinni. Meginhlutverk LandsMenntar er að stuðla að stuðningsverkefnum og þróunar- og hvatningaraðgerðum í starfsmenntun fyrir verkafólk á landsbyggðinni. Fyrirtæki geta í samstarfi við stéttarfélög sótt um styrki til LandsMenntar til þess að þróa og setja af stað námskeið fyrir sitt fólk. Aðalmarkmið sjóðsins er að treysta stöðu einstaklinga á vinnumarkaði og bæta samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja.
- Starfsafl er fræðslusjóður Samtaka atvinnulífsins og flóabandalagsins. Í tengslum við kjarasamninga vorið 2000 sömdu Samtök atvinnulífsins og Flóabandalagið um stofnun sérstaks sjóðs sem ætlað yrði að byggja upp menntun ófaglærðra, starfsfólki og fyrirtækjum til hagsbóta. Símenntun starfsmanna er lykill fyrirtækja að betra starfsumhverfi, aukinni framleiðni og styrkir samkeppnisstöðu þeirra.
- Menningar- og fræðslusamband alþýðu er fræðslustofnun verkalýðshreyfingarinnar sem býður upp á margvísilegt nám fyrir launafólk sem og þjónustu fyrir stéttarfélög á sviði fræðslumála.
- Námstorg er námsgátt sem býður fólki upp á margvísleg námskeið í fjarnámi. Mennt.is er upplýsingaveita um nám þar sem hægt er að nálgast margvíslegar upplýsingar um nám, námskeið og fræðslustofnanir.
- Iðan er upplýsingavefur um iðnað á Íslandi. Á vefnum er að finna margskonar upplýsingar um störf, iðngreinar og nám. Vefurinn er rekin af Samtökum iðnaðarins.